Alþjóðlegi hjartadagurinn – Hjartadagsganga.
26. september 2019Alþjóðlegi hjartadagurinn er haldinn 29. september ár hvert en það er Alþjóðahjartasambandið (World Heart Federation) sem hvetur aðildarfélög sín um allan heim til að halda upp á Hjartadaginn. Á Íslandi sameinast Hjartavernd, Hjartaheill, Neistinn og Heilaheill um að halda upp á daginn.
Í ár er lögð áhersla á að fólk verði hjartahetja með því að lofa sjálfum sér og öðrum að vernda hjartað sitt með einföldum breytingum fyrir hjartaheilsuna. Hvetja fólk í öllum þjóðfélagsstéttum til að sýna gott fordæmi fyrir næstu kynslóð og hugsa um hvað get ég gert núna til þess að passa hjartað mitt og hjartað þitt.
Föstudaginn 27. september kl. 18:00 hefst hjartadagsgangan í Elliðarárdalnum. Lagt verður af stað við brúnna sem er á milli gömlu rafstöðvarinnar og Toppstöðvarinnar. Göngustjórar eru starfsmenn Hjartaheilla og Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna – þátttakan er ókeypis. Genginn verður hringur sem er rétt um 4 km.
Oft er hægt að koma í veg fyrir hjartasjúkdóma og ótímabær dauðsföll með markvissri hreyfingu og að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl.
Hreyfðu þig! Hreyfing þarf ekki að vera bundin við íþróttir eða líkamsrækt og getur verið margs konar, eins og við heimilisstörf, garðvinnu eða einfaldlega að fara út og leika við börnin. Settu þér raunhæf markmið, ekki byrja á því að klífa fjall eða hlaupa maraþon, þú byggir upp þrek og þol smám saman.
Borðaðu hollt! Takmarkaðu neyslu á unnum matvörum sem oft innihalda mikinn sykur, salt og mettaða fitu. Gerðu holla matinn spennandi fyrir börnin, berðu fram litríkan mat eins og ávexti og grænmeti og láttu þau aðstoða við matargerðina. Leiddu hugann að skammtastærðum, notaðu minni matardiska og leyfðu grænmetinu og ávöxtunum að taka mesta plássið.
Segðu NEI við tóbaki! Hafðu reykingarlaust umhverfi. Fræddu börnin þín um skaðsemi tóbaks til að hjálpa þeim að velja líf án tóbaks. Til eru ýmsar leiðir til að hætta að reykja og stundum þarf að leita til sérfræðings.