Læknir les í mynd af spjaldtölvu
00/00

Afkomendarannsókn.

Afkomendarannsókn

Þessi hóprannsókn var meginverkefni rannsóknarstöðvarinnar á árinu 2000. Til hennar var boðið börnum þeirra þátttakenda í Hóprannsókn Hjartaverndar er fengið höfðu kransæða­stíflu og til samanburðar börnum þátttakenda er ekki höfðu fengið kransæða­stíflu. Erfða­fræði­nefnd annaðist gerð skráa yfir þessa afkomendur.

Í Afkomendarannsókn Hjartaverndar leitum við svara við þeirri spurningu hvort ýmsir þekktir áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma séu mismunandi eftir því hvort annað eða báðir foreldrar hafi fengið kransæðastíflu eða ekki.

Alls voru í þessari hópskoðun 7.958 einstaklingar, 5.351 í rannsóknarhóp og 2.607 í viðmiðunarhóp. Skipulagi þessarar rannsóknar var ítarlega lýst í síðustu ársskýrslum. Rannsóknin hófst í lok júní 1997 og í upphafi þessa starfsárs höfðu verið skoðaðir 1948 karlar og 2201 kona úr þessum hóp. Á starfsárinu voru skoðaðir 723 karlar og 599 konur. Þannig höfðu mætt til skoðunar 2671 karl og 2800 konur í lok starfsársins eða 5471 þátttakandi.

Á árinu sem framkvæmd rannsóknar hófst, ákvað SPRON (Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis) að styrkja Hjartavernd til að gera lokaátak í Afkomenda­rannsókn, því að í ljós kom þegar um helmingur þátttakenda hafði komið til rannsóknar, að afkom­end­­ur þeirra sem fengið hafa kransæðastíflu eru í mun meiri áhættu en þeir sem voru í viðmiðunarhóp.

Niðurstöður sem hér eru kynntar eru úr þeim hluta þýðisins sem hafði verið rannsakaður fyrir ágúst 1999. Þá höfðu 3383 afkomendur höfðu verið rannsakaðir 1563 karlar (1093 í tilfellahópi / 470 í viðmiðunarhópi) og 1820 konur (1235 í tilfellahópi /585 í viðmiðunarhópi)

  • Meðalaldur karla var 47 /- 9 ár og kvenna 48 /- 9 ár.
  • Blóðþrýstingur var hærri í tilfellahópi en í viðmiðunarhópi hjá körlum (í slagbili 2.3% (p=0,01) og hlébili 2.5% (p= 0.001). Hjá konum var þessi munur aðeins marktækur í hlébili (1.3% (p=0,015)).
  • Blóðfitugildi voru einnig óhagstæðari í tilfellahópi.
  • Hjá konum var heildarkólesteról og LDL kólesteról marktækt hærra (3.6% ( p=0,01) og 5.6% (p<0,001) og HDL kólesteról marktækt lægra (3.4% (p=0,02)) í tilfellahópi.
  • Hjá körlum var aðeins marktækur munur fyrir HDL kólesteról sem var lægra (4.2% p=0,003) í tilfellahópi.
  • Enginn munur var þó á heildarkóleteróli og LDL kólerteróli milli hópanna.
  • Ekki var heldur marktækur munur á blóðsykri eða þríglyseríðum þegar leiðrétt var fyrir þyngdarstuðli. Þyngarstuðull var hærri í tilfellahópi hjá báðum kynjum 2.2% hja´körlum (p=0,047) og 2.7% hjá konum (0,03).
  • Ályktun. Afkomendur hafa óhagstæðari samsetningu áhættuþátta ef foreldrar hafa fengið kransæðastíflu. Þessar niðurstöður geta haft mikilvæg áhrif á forvarna­starf.

Fyrstu niðurstöður úr rannsókninni birtust í tímaritinu Hjartavernd, árið 2000; 1 tbl.37.árg.
Kransæðastífla hjá foreldrum er ákvarðandi fyrir áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma í afkomendum eftir Margréti B. Andrésdóttur ásamt Gunnari Sigurðssyni, Helga Sigvaldasyni, Nikulási Sigfússyni, Ugga Agnarsyni og Vilmundi Guðnasyni.

Staðsetning Hjartaverndar

Staðsetning

Holtasmári 1, 2. hæð. 201 Kópavogur, Ísland Kt.: 600705-0590

Skoða á korti

Hafa samband við hjartavernd

Hafa samband

Opnunartímar hjartaverndar

Opnunartímar

  • Mán - Fös: 08:00 - 16:00
  • Helgar: Lokað
Holtasmári 1, 2. hæð., 201 Kópavogur, Ísland
Móttaka: 535-1800, Fax: 535-1801
Opnunartími í dag: 08:00 - 16:00
Fara efst á síðu