GoRed fyrir konur.

28. júní 2019

Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annarsstaðar í heiminum. GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á sjúkdómunum.

Af hverju GoRed?

Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annarsstaðar í heiminum. GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á sjúkdómunum. Aukin vitund kvenna um áhættuþættina hefur einnig óbein áhrif á lífsstíl karla og ungmenna. Nánar má lesa um alheimsátak GoRed með því að fara hér.

GoRed átakið er alheimsátak, á vegum World Heart Federation. Um er að ræða alþjóðlegt langtímaverkefni sem hófst í Bandaríkjunum og víða í Evrópu árið 2004 og hefur verið haldið á Íslandi frá árinu 2009.

Hvaða konur eru í forgangi?

  • Einkennalausar konur, 50 ára og eldri, ættu að fara í áhættumat til greiningar á áhættuþáttum á a.m.k. 5 ára fresti.
  • Einkennalausar konur yngri en 50 ára sem hafa ættarsögu um hjarta- og æðasjúkdóm hjá 1. gráðu ættingjum og/eða með sögu um ættgenga blóðfituröskun ættu að fara í skoðun reglulega í samráði við sinn lækni.

Helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma hjá konum:

  • Aldur
  • Reykingar. Kona sem reykir þre til fjórfaldar áhættu sína á að fá hjartasjúkdóm.
  • Sykursýki er alvarlegur áhættuþáttur hjá konum.
  • Blóðfituröskun
  • Háþrýstingur
  • Ættarsaga um kransæðasjúkdóm hjá 1. gráðu ættingjum
  • Ofþyngd (BMI > 25-30) sérstaklega aukin kviðfita
  • Offita (BMI>30)
  • Hreyfingarleysi

Ofangreindir áhættuþættir eru flestir einkennalausir og því þarf að mæla þá sérstaklega.

Einkenni hjartaáfalls og heilaslags – Konur eru öðruvísi:

Konur eru líklegri til að upplifa eftirfarandi einkenni hjartaáfalls:

  • Óútskýrðan slappleika eða þreytu
  • Óeðlilegt kvíðakast eða verða taugaóstyrkar
  • Meltingartruflanir eða verk vegna uppþembu

Konur og karlar upplifa eftirfarandi einkenni hjartaáfalls:

  • Þyngsl eða verk fyrir brjósti eða fyrir neðan bringubein
  • Óþægindi eða verk milli herðablaða, í hálsi, kjálka eða maga
  • Verk sem kemur við áreynslu og hverfur við hvíld og getur verið fyrirboði kransæðastíflu
  • Stöðugan verk fyrir brjósti etv. með ógleði og kaldsvita sem getur verið einkenni um bráðakransæðastíflu og krefst tafarlausrar meðferðar

Konur og karlar upplifa eftirfarandi einkenni heilaslags:

  • Dofa eða máttleysi í andliti, handlegg eða fæti, aðallega í öðrum helmingi líkamans
  • Ringlun, erfiðleika með að tala eða að skilja
  • Erfiðleika með að sjá með öðru eða báðum augum
  • Erfiðleika með gang, svima, skort á jafnvægi eða samhæfingu
  • Slæman höfuðverk af óþekktri orsök
  • Yfirlið eða meðvitundarleysi

GoRed 2019

Við höldum upp á 10 ára afmæli GoRed,vitundarvakningar um hjartasjúkdóma kvenna, í samvinnu við 1.6 fyrir heilbrigði kvenna á Íslandi og efnum til ráðstefnu fyrir konur í Silfurbergi í Hörpu þann 1. febrúar. Fjallað verður um hjartasjúkdóma kvenna á öllum aldri m.a. tengt krabbameini og álagi, konur deila með ykkur sögum um áskoranir og áföll sem eru vel þekkt í nútímasamfélaginu á borð við kulnun. Í lok ráðstefnunnar verður kveikt á ljósaverkinu HJARTAVERK á Hörpu og ráðstefnugestum gefst tækifæri á að varpa hjartslætti sínum á ljósahjúpinn fallega.

GoRed 2018

Hjartagangan 2018 fer fram 2. febrúar. Gengið verður frá Hallgrímskirkju kl 20 (mæting kl 19:45). Gengið verður að Hörpu þar sem ljósverkið Harpa verður afhjúpað.

GoRed 2016

Hjarta- og æðasjúkdómar eru ein algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annarsstaðar í heiminum. Með forvörnum má draga verulega úr líkunum á þessum sjúkdómum. Samkvæmt rannsóknum Hjartaverndar eykst tíðni áhættuþátta hjá konum eftir 50 ára aldur, og má þar nefna hækkaðan blóðþrýsting, hátt kólesteról, sykursýki og ofþyngd. Jákvætt er að verulega hefur dregið úr reykingum á Íslandi en reykingar eru mjög stór áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma, ekki síst hjá konum. Með hollu mataræði og reglubundinni hreyfingu má draga úr flestum áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma. Það eru einungis fáein ár síðan farið var að leggja áherslu á að miðla upplýsingum til kvenna og heilbrigðisfagfólks um hve tíðni hjarta- og æðasjúkdóma er há hjá konum. Mikilvægt er að upplýsa konur um fyrstu einkenni hjarta- og heilaæðasjúkdóma til að geta brugðist skjótt við.

GoRed átakið er alheimsátak á vegum World Heart Federation og hófst á Íslandi árið 2009. Í ár verða 14.-21. febrúar sérstaklega helgaðir GoRed og er það vel við hæfi, en 14. feb er einmitt Valetnínusardagur og 21. feb konudagurinn. Markmið GoRed átaksins er að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og ýta undir rannsóknir á þessum sjúkómum hjá konum. “GoRed fyrir konur á Íslandi” er samstarfsverkefni Hjartaverndar, Hjartaheilla, Heilaheilla, hjartadeildar Landspítalans og fagdeildar hjartahjúkrunarfræðinga. Verndari átaksins hér á landi er Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrum heilbrigðisráðherra. Formaður stjórnar GoRed er Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir sérfræðingur í hjartasjúkdómum.

Í vikunni munu heilbrigðisstarfsmenn flytja fræðsluerindi á vinnustöðum og hjúkrunarfræðingar verða með upplýsingar í verslunarmiðstöðvum: Miðvikudaginn 17. febrúar milli kl 16 og 19, fimmtudaginn 18. febrúar milli kl 17 og 20 og loks laugardaginn 20. febrúar milli kl 13 og 16.
Í tilefni átaksins eru Landspítalinn við Hringbraut og Aðalbygging Háskóla Íslands eins og undanfarin ár lýst upp í rauðum lit í febrúar.

Föstudagurinn 19. febrúar verður “Klæðumst rauðu dagur” þar sem landsmenn eru hvattir til að klæðast rauðum fatnaði.

Hápunktur átaksins verður fræðslu- og skemmtistund sunnudaginn 21. febrúar í Iðnó. Húsið opnar kl. 12.40 með ljúfri tónlist, en dagskráin hefst kl 13.00 og lýkur kl. 15.00. Kynnir dagsins verður Hulda Guðfinna Geirsdóttir.

Á dagskrá eru meðal annars fræðsluerindi um hjartavænt fæði, um hjartað lífstílinn og hamingjuna og hjartað sem ekki slær í takt. Að auki munu tónlistarmaðurinn Björn Thoroddsen stíga á svið ásamt uppistandaranum Önnu Þóru Björnsdóttur og spunaflokknum Improv Iceland, þannig að búast má við mjög fróðlegri og skemmtilegri dagskrá. Aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir.

Til mikils er að vinna, því markmið átaksins er að fræða um forvarnir og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma en sú þekking getur bjargað mannslífum.